Please wait while JT SlideShow is loading images...
Photo Title 1
Þú ert hér: Fréttatilkynning - REGNBOGAHÁTÍÐ

Fréttatilkynning - REGNBOGAHÁTÍÐ

GUÐSÞJÓNUSTA Í FRÍKIRKJUNNI Í REYKJAVÍKregnbogahatid_frett

Í SAMSTARFI VIÐ SAMTÖKIN 78

TILEFNI: Gildistaka nýrra hjúskaparlaga.

SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 27. JÚNÍ 2010 KL. 20.00

Prestur: Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur í Fríkirkjunni

Fram koma:

Páll Óskar,  Hörður Torfa,  Sigga Beinteins, Bergþór Pálsson, Lay Low, Maríus Hermann Sverrisson,  Hreiðar Ingi Þorsteinsson,  Andrea Gylfadóttir,  Agnar Már Magnússon píanóleikari  og  Fríkirkjukórinn undir stjórn  Önnu Sigríðar Helgadóttur.

------------

Nýtt stjórnarfrumvarp um breytingu á hjúskaparlögum var samþykkt nýlega á Alþingi.  Hér eftir gilda einungis ein hjúskaparlög í landinu fyrir alla, óháð kynhneigð fólks.   Þetta er mikilvægt skref og tryggir að samkynhneigð pör sitja loks við sama borð og gagnkynhneigðir og geti gengið í hjónaband.

Lögin munu taka gildi sunnudaginn 27. Júní nk.   Af því tilefni vilja Samtökin 78 halda Regnbogahátíð með guðsþjónustu í Fríkirkjunni í Reykjavík, næsta sunnudagskvöld kl. 20.00.    Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur í Fríkirkjunni, mun leiða þessa samverustund ásamt fjölda tónlistarfólks, sem talið er hér upp fyrir ofan.

Dagsetningin er engin tilviljun, en 27. Júní er opinber Gay Pride hátíðsdagur víða um heim – en þann dag árið 1969 hófust Stonewall uppþotin í New York, sem talin eru marka upphaf réttindabaráttu samkynhneigðra.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir sem vilja samgleðast samkynhneigðum, fjölskyldum og velunnurum þeirra á þessum mikilvæga degi.

Samtökin 78 bjóða svo kirkjugestum upp á léttar veitingar í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg.

Joomlart

Kirkjuvörður

Anna Hulda Júlíusdóttir
GSM: 868 4936
annahulda@frikirkjan.is

Safnaðarheimilið

Upplýsingar um útleigu á safnaðarsal er hægt að fá á skrifstofu safnaðar að
Laufásvegi 13, eða í síma:
552 7270

Viðtalstími presta

Hjörtur Magni Jóhannsson
GSM: 899 4131
hjorturm@frikirkjan.is
Viðtalstími eftir samkomulagi
Skrifstofa: 552 7270

Bryndís Valbjarnardóttir
GSM: 860 8845
bryndis@frikirkjan.is
Viðtalstími eftir samkomulagi
Skrifstofa: 552 7270

Tónlistarstjórar

Anna Sigríður Helgadóttir
GSM: 861 3843
annasigga63@simnet.is
Carl Möller
GSM: 897 2594